farfugl, staðfugl er sýning hérna í sveitinni um fugla eins og gefur að skylja en hún var sett á stað til að minnast allra þeirra fugla sem er drepnir á þjóðvegum landsins
En nóg af því því nuna er allt komið á fult hérna í sveitini, þaðer buið að sá og bera á , kornið er farið að kýkja upp, Kýrnar komnar út og skvetta úr klaufnum ut um alla móa, og Leifur kominn í framkvæmdar fýlling því hann keypti gróðurhús sem ég er að fara setja upp. það er buið að vera geggjað veður hérna á norðurlandinu 15 og sól og stundum meira en ég fór suður til að fagna próflokum og var mikið gamann og mikið fjör og skemmtum við okkur mjög vel , við matti buðum stefaníu og klöru í mat á föstudaginn og griluðum nautasteik og kjúkling og var það þvíligt gott.
svo smá fréttir úr sveitinni en heirst hefur að Atli á Rifkilstöðum hafi misst sig aðeins yfir einhverja listamanns bjánum sem voru að mála um 40 steina hvíta út í náturinni án leyfis.
hjálparsveitinn Dalbjörg héllt svakalega óvissuferð um seinustu helgi sem allir skemmtu sér mjög vel í
Húni á Litla Hammri er að fara að byggja og er þetta mikið hugrekki að fara að byggja í þessum tímum.
Kv Hermann